White Meadows is a blog by Gunnar Hafdal.
He also has a Twitter account, a Flickr profile, a tumblelog called White Tumbles and a del.icio.us account.
Íslenskt dægurlaga partý
Já, það var sko reimað og massað um helgina. Á föstudaginn þá var tekið upp atriðið í myndbandinu Leó og Högna þar sem ég hleyp aðeins á eftir aðalkarakternum sem einhverskonar gimp djöfull. Tommi var svo djöfla meistarinn. Agalega klikkað eitthvað. Eftir það var svo drukkið aðeins og svo farið á barinn.

Á Laugardeginum þá átti að hafa partý. Það átti að taka það upp og nota í byrjunina á myndbandinu sem Leó og Högni eru að gera. Það gekk ekki alveg þó búið væri að lofa fullt af íslenskum dægurlögum til að hlusta á. Þannig að það var ákveðið að slútta því fram á næsta föstudag og gera veglegt partý þá. Í staðinn fyrir að hjakkast í leiðinlegu partý þá var farið á barinn að hlusta á DJ Darling spila Old School Trance sem var hin fínasta skemmtun.
Svo á sunnudaginn fór kallinn í smá salsa nám niðrí sTUDENTERHUS åRHUS og var það hin fínasta skemmtun. Það að hjóla niðrí bæ og uppeftir aftur var ekki alveg jafn skemmtilegt hinsvegar.
Svo er maður bara búinn að vera að vinna í verkefninu í dag og gengur það alveg ágætlega.