White Meadows is a blog by Gunnar Hafdal.
He also has a Twitter account, a Flickr profile, a tumblelog called White Tumbles and a del.icio.us account.
function view($id)

Hérna er smá partur af því sem ég er búinn að gera. Það sem þið eruð að sjá view controllerinn. Það sem hann gerir er að sækja upplýsingar um einn einstakan atburð í gegnum model og henda svo öllum upplýsingunum inní view sem sér um að raða þeim upp og láta þá líta vel út.
Ég er að kóða þetta í CodeIgniter framework-inu sem leyfir mér að einblína að mínum eigin kóða á meðan það sér um öll gagnagrunnsköll og marg fleira. Það inniheldur alveg slatta af tilbúnum kóða sem ég þarf þá ekki að skrifa og leyfir mér að vinna hraðar. CodeIgniter notar MVC hugsunina en þá er kóðanum skipt upp í 3 skrár. Model sem sér um að kalla í gagnagrunninn. Controller sem er aðalskráin, það er hún sem kallar í Model-ið. Svo síðast View sem er það sem notandinn sér eftir að Controller-inn og Model-ið hafa gert sitt.
Í dag ætla ég svo að vinna að User partinum af síðunni. Ég er kominn með að notendur geta skráð sig á síðuna og loggað sig inn og út en í lok dagsins í dag þá munu þeir geta breytt profílnum sínum, sett notenda mynd ef þeir vilja, skrifað smá texta um sig og þess háttar.
Svo munu þeir svo geta sett inn atburði, tónlistamenn og fleira, en meira um það seinna.