White Meadows

White Meadows is a blog by Gunnar Hafdal.

He also has a Twitter account, a Flickr profile, a tumblelog called White Tumbles and a del.icio.us account.

And She's Back

Jæja, þá er ég kominn með whitemeadows.net á mitt eigið svæði. Ætla að hafa þetta blog þar núna, hver veit hvað mun svo koma undir því seinna. Vann að þessari hönnun í gærkvöldi og svo aðeins í dag. Vona að þetta líti vel út allstaðar.

Ég týndi myndavélinni minn fyrir 2 vikum síðan en hún kom svo í leitirnar í gær, sem betur fer. Ég tók hinsvegar bara myndir á Zorki 6 vélina mína í staðinn. Þyrfti að klára filmuna og fara með hana svo í framköllun og sjá hvort þetta séu góðar myndir. Það er nefnilega enginn ljósmælir á myndavélinni þannig að ég þurfti að giska bara á þetta.

Ég er búinn að vera að vinna að verkefninu núna síðustu viku ásamt því að grilla með fólkinu hérna á Skjoldhoej. Verkefnið er komið svosem ágætlega á veg. Ég er búinn að vera að nota WriteRoom við að skrifa og er ég að elska það forrit. Það fer í fullscreen nefnilega og blokkar allt nema það sem maður er að skrifa og ég er að elska það.

Svo er Tommi víst að fara að spila aftur á barnum 5. Maí ásamt einhverji svaka DJ gellu og það eiga allir að mæta. Tommi er líka búinn að kaupa sér þetta líka svaka fína LCD sjónvarp, tæpar 40" að stærð. Fínt að horfa á fótboltann í þessu og spila Wii og svona.

En það er svo sem ekki mikið meira að ske hérna hjá mér, sumarið er hinsvegar komið og þá fer maður að grilla og þessháttar. Svipað og er búið að vera að gera á myndunum hérna í þessari færslu.

Leó

Relaxing

20042008041

Sitjandi

blog comments powered by Disqus